1. (1767). fundur
1. (1767). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.01.2017
Kl. 08:00 - 08:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðfinna Björk Kristjánsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1701024
01
Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi
Málsnúmer 1612149
02
Svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Guðrúnar Elínar Herbertsdóttur um félagslegar íbúðir, dags. 03.01.16.
Bæjarstjóri og félagsmálastjóri fóru yfir framlagt svar. Málið rætt.
Lagt fram.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612232
03
Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um niðurfellingu fasteignagjalda 2016, dags. 22.12.16.
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar og líknarsjóði Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 1.429.740 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála og verkfærahúsi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612273
04
Umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi vegna Þorrablóts Stjörnunnar
Málsnúmer 1701074
05
Drög að viljayfirlýsingu Áss styrktarfélags og Garðabæjar um samstarf við uppbyggingu á búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk.
Bæjarstjóri greindi frá viðræðum við styrktarfélagið. Bæjarráð lýsir ánægju með viljayfirlýsinguna og leggur áherslu á að í kjarnanum verði að minnsta kosti sex íbúðir fyrir fatlað fólk.
Málsnúmer 1701004
06
Bréf Umhverfisstofnunar um endurvinnslu heimilisúrgangs, dags. 29.12.16.
Bæjarverkfræðingur fór yfir málið.
Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606494
07
Tilkynning Orkusjóðs um styrki til uppbyggingar innviða fyrir rafbíla, dags. 04.01.17.
Bæjarstjóri kynnti málið og greindi frá því að næsta skref væri að finna staðsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla. Málið rætt.
Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612272
08
Samkomulag fjármálaráðherra og Sambands ísl. sveitarfélaga um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimila
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra umboð samningsgerðar við ríkið vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimila.
Málsnúmer 1609033
09
Leigusamningur um aðstöðu fyrir bílaþrif í bílakjallara við Garðatorg 7B.
Bæjarráð samþykkir samninginn með þeim fyrirvara að gerð sé sú breyting á 5. gr. að leigutaka og leigusala skuli heimilt að segja samningnum upp hvenær sem er á leigutímanum með eins mánaðar fyrirvara.
Málsnúmer 1701104
10
Beiðni leikfélagsins Verðandi um styrk vegna leiksýningar í FG vorið 2017, dags. 05.01.17.
Bæjarráð tekur jákvætt í verkefnið og vísar því til bæjarstjóra og menningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604253
11
Viðræður við ríkið vegna Vífilsstaða.
Bæjarstjóri greindi frá stöðu viðræðna við fjármálaráðuneytið um land Vífilsstaða.
Bæjarstjóri greindi frá stöðu viðræðna við fjármálaráðuneytið um land Vífilsstaða.