10. (793). fundur
10. (793). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
16.06.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Sigríður Björk Gunnarsdóttir - varamaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
[line]Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Forseti bauð Hlíf Böðvarsdóttur, varabæjarfulltrúa velkomna á sinn fyrsta fund í bæjarstjórn Garðabæjar.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 2. júní 2016 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 7/6 ´16.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi athugasemdir og ábendingar sem sendar hafa verið bæjarfulltrúum um niðurrif á hjólabrettapalli við Búðarkinn og 20. tl., tilkynningu umhverfis- og auðlindaráðuneytis um afturköllun friðlýsingar Búrfells o.fl.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, gerði grein fyrir viðbrögðum vegna niðurrifs á hjólabrettapalli og ábyrgð bæjarins á öryggi leiktækja á opnum svæðum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 20. tl., tilkynningu umhverfis- og auðlindaráðuneytis um afturköllun friðlýsingar Búrfells o.fl. og gerði nánari grein fyrir ástæðum afturköllunar. Jóna sagði að bætt verði úr ágöllum á málsmeðferð og í framhaldinu verði tillaga um friðlýsingu auglýst að nýju.
Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.
1.24 - 1512145 - Umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog
Súsanna Vilhjálmsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Björt framtíð lýsir yfir undrun sinni á afgreiðslu á umsóknum um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog. Umsóknarferlið og sér í lagi ákvörðunarferlið um val á aðila er vægast sagt ógagnsætt. Þrír aðilar sóttu um lóðina og sá aðili varð fyrir valinu sem sýndi af sér hvað slælegustu frammistöðu við kynningu á sinni umsókn.
Umsækjandinn var með óstofnað félag og þar með ekki í stakk búinn til að uppfylla umsóknarskilyrði, auk þess að mæta ekki á boðuðum tíma til að kynna hugmyndir sínar. Í öllu ferlinu hefur þessum umsækjanda verið gefin aukin tækifæri umfram aðra umsækjendur til að kynna sín mál sem varla getur talist sanngjarnt gagnvart þeim tveim aðilum sem stóðu við sitt í ferlinu.“
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
Steinþór Einarsson, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
María Grétarsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
Súsanna Vilhjálmsdóttir, tók til máls að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun. Gunnar Valur kom á framfæri þakklæti til umsækjenda fyrir góðar og vandaðar umsóknir.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að gengið verði til samninga við óstofnað hlutafélag „Arnarvog ehf.“ um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog. Fyrirvari er um að við undirskrift samnings hafi félagið formlega verið stofnað og stofnefnahagsreikningur lagður fram staðfestur af löggiltum endurskoðanda.
Hlíf Böðvarsdóttir og Súsanna Vilhjálmsdóttir greiða atkvæði gegn tillögunni.
Steinþór Einarsson og María Grétarsdóttir sitja hjá.
Fylgiskjöl
- Umsókn I og K um lóð fyrir veitingahús við Arnarnesvog
- Veitingahús við Arnarnesvog 03.pdf
- Veitingahús við Arnarnesvog 02.pdf
- Veitingahús við Arnarnesvog 01.pdf
- Veit-Greinarg (260216).pdf
- Veit-00 (260216).pdf
- Tillaga að veitingahúsi A3
- Umsækjendur.pdf
- Veitingahús - Tillagan í betri myndgæðum
- Umsókn um lóð við Arnarvog 26.02.16.pdf
- Veitingahús við Arnarvog.pdf
- Veit-01 (260216).pdf
- Veit-03 (260216).pdf
- Veit-04 (260216).pdf
- Veit-05 (260216).pdf
- Veit-Umsók útfyllt.pdf
- Veit-02 (260216).pdf
- Veit-01 (260216).pdf
- Veit-00 (260216).pdf
- Veit-Greinarg (260216).pdf
- Tillaga að veitingahúsi A3
- Umsókn um veitingahúsalóð
- Umsóknareyðublað
02
Fundargerð bæjarráðs frá 14/6 ´16.
Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.
2.1 - 1503196 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 - Viðauki 2
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki vegna launahækkana kr. 253.816.736.
Ofangreindum viðauka skal mætt með lækkun á varasjóði kr. 190.000.000 (31-6-916-7179) og lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 63.816.737.
Fylgiskjöl
2.6 - 1601348 - Uppsögn samnings við Heilsugæslu Garðabæjar um greiðslu launakostnaðar starfsmanns, dags 14.07.16.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi 6. tl., uppsögn samnings við Heilsugæslu Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að segja upp samningi við Heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu um greiðslu launakostnaðar vegna sérstaks verkefnis.
Steinþór Einarsson og María Grétarsdóttir sitja hjá.
Fylgiskjöl
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 7/6 ´16.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi yfirlit um störf skólanefndar á skólaárinu og helstu áherslur skólanefndar á næsta skólaári
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi helstu áherslur í skólastarfi og mikilvægi þess að huga vel að geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 8/6 ´16.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 4. tl., salernisaðstöðu við ströndina á Sjálandi.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi 4. tl., salernisaðstöðu við ströndina á Sjálandi, 6. tl., samgöngustíg yfir Arnarneshæð og 9. tl., gerlamælingar á vegum heilbrigðiseftirlitsins í yfirborðsvatni og sjó við strendur bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., fræðslu- og sögugöngur 2016. Sigríður Hulda kom á framfæri þakklæti til starfsmanna Álftaneskaffi fyrir frábæra þjónustu við framreiðslu veitinga fyrir göngumenn í Gálgahraunsgöngu.
Áslaug Hulda Jónadóttir, ræddi 1. tl., samstarf Wapp og Garðabæjar um skráningu og birtingu leiðarlýsinga og hvatti til að nýta reynslu af samstarfinu til þróunar þjónustu við bæjarbúa á nýjum vettvangi.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 27/5 ´16
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., vagnakaup Strætó og ræddi í því sambandi um umhverfisvæna orkugjafa fyrir strætisvagna. Þá ræddi Gunnar Valur 3. tl., farþegatalningar og 6. tl., erindi Kópavogsbæjar um að hafa frítt í strætó á kjördag.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi 2. tl., vagnakaup og umhverfisvæna orkugjafa fyrir strætisvagna.
Hlíf Böðvarsdóttir, ræddi 2. tl., vagnakaup og umhverfisvæna orkugjafa fyrir strætisvagna.
Sturla Þorsteinsson ræddi 2. tl., vagnakaup og umhverfisvæna orkugjafa fyrir strætisvagna.
Fundargerðin lögð fram.
12
Umboð til bæjarráðs til að taka til meðferðar ahugasemdir við kjörskrá.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði umboð til að taka til meðferðar athugasemdir vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar á henni samkvæmt 27. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, sbr. 6. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945.
13
Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2016
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 18. ágúst 2016. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 16. ágúst 2016.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.
14
Gjaldskrá fyrir Tónlistarskóla Garðabæjar skólaárið 2016-2017.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2016 ? 2017.
15
Samþykkt um hænsnahald í Garðabæ (síðari umræða).
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samþykkt um hænsnahald í Garðabæ.
Samþykktin skal send umhverfis- og auðlindaráherra til staðfestingar samkvæmt 25. gr. laga um hollustuhætti og og mengunarvarnir nr. 7/1998.