Beint í efni

Fundargerð umhverfisnefndar frá 8/6 ´16.

Málsnúmer 1606008F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (793). fundur

Sturla Þorsteinsson, ræddi 4. tl., salernisaðstöðu við ströndina á Sjálandi.

Jóna Sæmundsdóttir ræddi 4. tl., salernisaðstöðu við ströndina á Sjálandi, 6. tl., samgöngustíg yfir Arnarneshæð og 9. tl., gerlamælingar á vegum heilbrigðiseftirlitsins í yfirborðsvatni og sjó við strendur bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., fræðslu- og sögugöngur 2016. Sigríður Hulda kom á framfæri þakklæti til starfsmanna Álftaneskaffi fyrir frábæra þjónustu við framreiðslu veitinga fyrir göngumenn í Gálgahraunsgöngu.

Áslaug Hulda Jónadóttir, ræddi 1. tl., samstarf Wapp og Garðabæjar um skráningu og birtingu leiðarlýsinga og hvatti til að nýta reynslu af samstarfinu til þróunar þjónustu við bæjarbúa á nýjum vettvangi.

Fundargerðin lögð fram.