Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 7/6 ´16.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (793). fundur
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi athugasemdir og ábendingar sem sendar hafa verið bæjarfulltrúum um niðurrif á hjólabrettapalli við Búðarkinn og 20. tl., tilkynningu umhverfis- og auðlindaráðuneytis um afturköllun friðlýsingar Búrfells o.fl.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, gerði grein fyrir viðbrögðum vegna niðurrifs á hjólabrettapalli og ábyrgð bæjarins á öryggi leiktækja á opnum svæðum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 20. tl., tilkynningu umhverfis- og auðlindaráðuneytis um afturköllun friðlýsingar Búrfells o.fl. og gerði nánari grein fyrir ástæðum afturköllunar. Jóna sagði að bætt verði úr ágöllum á málsmeðferð og í framhaldinu verði tillaga um friðlýsingu auglýst að nýju.
Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.