Beint í efni

1. fundur

30.06.2014
Umhverfisnefnd Garðabæjar

1. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

30.06.2014

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1406388

01

Kynning á starfsháttum umhverfisnefndar

.

Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar setti fyrsta fund umhverfisnefndar og bauð fólk velkomið til starfa.$line$$line$Guðjón Erling Friðriksson, bæjarritari, mætti á fund umhverfisnefndar og kynnti nokkur atriði varðandi starfshætti nefnda. Bæjarritari gerði einnig grein fyrir hlutverki umhverfisnefndar samkvæmt lögum og svaraði fyrirspurnum.$line$Síðan vék Guðjón af fundinum.

Málsnúmer 1406303

02

Umhverfisnefnd 2010-2014 - verkefnayfirlit

Kynnt yfirlit umhverfismála og náttúruverndar á síðasta kjörtímabili.

Umhverfisstjóri fór yfir málefni umhverfismála og náttúruverndar sem eru í gangi milli ára og þeirra sem þarf að ljúka.

Málsnúmer 1406304

03

Snyrtilegt umhverfi 2014 - umhverfisviðurkenningar

1. Ákvörðun um skilti fyrir snyrtilegustu götuna 2014.$line$2. Auglýsing eftir ábendingum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, fyrirtækis, opið svæði eða götu.$line$

Undirbúningur að auglýsingu og vali fyrir snyrtilegt umhverfi 2014.$line$Ákveðið að halda sömu hönnun á skilti við snyrtilegustu götuna.$line$Að auglýsa eftir ábendingum um snytilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, fyrirtækis, opins svæðis og götu í Garðapóstinum útg. 3. júlí nk.

Málsnúmer 1404306

04

Áætlun til þriggja ára refaveiða

Frá fundi fulltrúa sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hjá SSH 3. júní sl. um erindi Umhverfisstofnunnar og hvort samræming eða samstarf á höfuðborgarsvæðinu væri hugsanlegt.

Lagt fram.

Málsnúmer 1402243

05

Samningur um beitarhólf

Undirritaður var samningur um notkun beitarhólfs í landi Hafnarfjarðar við Krísuvík þann 11. júní 2014 fh. Hafnarfjarðar, Garðabæjar og leigutaka þ.e. Fjáreigendafélags Hafnarfjarðar.

Lagt fram.

Málsnúmer 1406302

06

Hænsnahald í Garðabæ

Kynntar fyrirspurnir um hænsnahald í Garðabæ og kvartanir af hænsnahaldi.

Ákveðið að nefndin vinni að gerð samþykktar um hænsnahald í Garðabæ.

Málsnúmer 1406038

07

Afmarkað svæði fyrir lausagöngu hunda

Kynntar fyrirspurnir um opið svæði fyrir hunda.

Málefni hundasvæðis tekið fyrir og rætt um að Bali sé opið útivistarsvæði fyrir hunda. $line$Ákveðið að skoða svæðið um leið og nefndin fer í vettvangsferð um bæinn vegna snyrtilegs umhverfis.

Málsnúmer 1406301

08

Hraðhleðsla fyrir rafbíla í Kauptúni

Hraðhleðslu fyrir rafbíla hefur verið komið upp í Kauptúni á lóð IKEA af Orku náttúru (ON). Þetta er sjötta stöðin stöðin sem ON setur upp á Suður- og Vesturlandi. $line$IKEA tekur verndun umhverfis og náttúru alvarlega og vill taka þátt í þeirri þróun að jarðarbúar temji sér sjálfbærar lífsvenjur. Hraðhleðslan er öllum gestum IKEA gjaldfrjáls.

Nefndin fagnar þjónustu við rafbíla í Kauptúni.

Málsnúmer 1402323

09

Fræðslugöngur 2014

Í vinnslu að bjóða uppá sögu- og fræðslugöngu um svæði fornminja við Skógtjörn í leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings.

Ákveðið að stefna að fræðslugöngu seinnipartinn í ágúst eða september.

Málsnúmer 1406300

10

Trjárækt á Álftanesi

Erindi Lionsklúbbsins Seylu dags. 10. júní um að efla trjárækt á Álftanesi sem samfélagsverkefni í klúbbsins umhverfismálum.

Ákveðið að svara erindi Lionsklúbbsins Seylu jákvætt varðandi að vinna í að finna heppilegt svæði til trjáræktar fyrir klúbbinn. $line$Athuga þarf eignarhald á landi og skipulagsmál.