Fundargerð bæjarráðs frá 10/5 ´16.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (791). fundur
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 4. tl., umsókn um byggingarleyfi og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Byggingarleyfi hefur nú verið útgefið fyrir nýbyggingu að Garðatorgi 6. Með því eru hafnar framkvæmdir við síðasta mannvirkið sem rís samkvæmt deiliskipulagi fyrir miðbæ Garðabæjar.
Áður hafa risið verslunar- og þjónustuhúsnæði við Litlatún 1 og 3, íbúðarhúsnæði við Kirkjulund 12-14, bílakjallari í eigu Garðabæjar við Garðatorg, íbúðar- og verslunarhúsnæði við Garðatorg 4 og íbúðarhúsnæði við Garðatorg 2.
Uppbyggingin er í samræmi við forsendur sem byggja á áætlunargerð í deiliskipulagi og mörkuð hefur verið í framkvæmd með samningum Klasa og Garðabæjar með þeim árangri að við Garðatorgið er nú að verða að veruleika nýr miðbær Garðabæjar með nýjum íbúum, verslunum, veitingastarfsemi, menningu í Hönnunarsafni Íslands og á vegum Grósku og þjónustustarfsemi af ýmsum toga.
Í nýjum miðbæ Garðabæjar verða um 132 nýjar íbúðir og má áætla að íbúar muni greiða árlega útsvar sem nemur um 150 mkr og þá má áætla að árlegar tekjur vegna fasteignagjalda verði um 60 mkr. Samtals mun árlegar tekjur Garðabæjar nema um 210 mkr án þess að til komi viðbótarfjárfesting í innviðum eins og uppbyggingu skólahúsnæðis o.fl.
Ástæða er til að fagna góðu samstarfi sem skilað hefur árangri til hagsbóta fyrir samfélagið í Garðabæ.“
Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.