Fundargerð bæjarráðs frá 17/5 ´16.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (791). fundur
María Grétarsdóttir, ræddi 2. tl., Garðatorg 6 ? byggingarleyfi og lagði fram eftirfarandi bókun..
„Í 24. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138 frá 2011 er kveðið á um að sveitarstjórnarmönnum beri í hvívetna að gæta að almennum hagsmunum íbúa sveitarfélagsins sem og öðrum almannahagsmunum.
Garðabær hefur í gegnum miðbæjarsamninga við Klasa afhent lóðir endurgjaldslaust sbr. samkomulag um þróun og uppbyggingu miðbæjar í Garðabæ frá 9. maí 2005, samkomulag um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í miðbæ Garðabæjar frá 15. desember 2006 og lóðarleigusamning um lóð í miðbæ Garðabæjar frá 24. maí 2013 auk nokkurra annarra “samkomulaga? og “viðauka?, í miðbæ Garðabæjar og víðar. Einnig hefur Garðabær í gegnum framangreinda samninga tekið á sig kostnað á um annan milljarð króna í formi bílastæðakjallara, leigugreiðslna, eftirgjöf fasteignagjalda og vaxtatekna, frágangs á yfirborði á miðbæjarsvæði auk þess sem Garðabær rekur svæðið. Nú eru að hefjast framkvæmdir við nýjustu byggingu Klasa á miðbæjarsvæðinu og enn og aftur er fyrirtækinu afhent lóð á besta stað í bænum endurgjaldslaust auk þess sem Garðabær mun fjármagna flutning á innkeyrslu af Vífilsstaðavegi inn á Garðatorg.
Fólkið í bænum telur sveitarstjórnarlög gróflega brotin gagnvart íbúum bæjarins þar sem lóðir og skattfé íbúa að fjárhæð allt að þremur milljörðum króna er ráðstafað til einkafyrirtækis án endurgjalds.“
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna bókun og áskildi sér rétt til gagnbókunar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi framkomna bókun.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi framkomna bókun.
Sturla Þorsteinsson, ræddi framkomna bókun.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.