Beint í efni

Umsókn í forvali vegna framkvæmda við fjölnotasal fyrir bæjarskrifstofur.

Málsnúmer 1511121

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

27. (1793). fundur

Í forvali barst ein umsókn frá E. Sigurðssyni ehf., kt. 690107-1040.

Bæjarráð samþykkir að bæjarverkfræðingur fari í könnunarviðræður við umsækjanda á grundvelli umsóknarinnar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

7. (1724). fundur

Kynntar hugmyndir að hönnun fjölnotasalar fyrir fundi bæjarstjórnar o.fl.

Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri leiti samninga við Yrki-arkitekta um hönnun og gerð kostnaðaráætlunar vegna framkvæmda við fjölnotasal. Leitast skal við að leita hagkvæmra lausna við hönnun til að halda kostnaði í lágmarki. Framkvæmdir við innréttingar skulu boðnar út með opnu útboði.