Minnisblað upplýsingastjóra um notkun Garðabæjar á samfélagsmiðlum, dags. 12.02.16.
Málsnúmer 1602261
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
7. (1724). fundur
Á fund bæjarráð mætti Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri og gerði grein fyrir minnisblaði um notkun Garðabæjar á samfélagsmiðlum þar sem m.a. kemur fram að Garðabær starfrækir í dag facebook-síðu en hefur ekki enn farið inn á aðra samfélagsmiðla. Í minnisblaðinu er jafnframt gerð grein fyrir innrivef starfsmanna, hugmyndum um að endurhanna ytri vefi Garðabæjar og að kanna möguleika á að útbúa Garðabæjarapp þar sem gönguleiðir og útivistarsvæði Garðabæjar verða kynnt.