Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna nr 1-3 og 5-7 við Mosagötu 1-7.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. (1728). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts vega lóðanna nr. 1-3 og 5-7 við Mosagötu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram tillaga að lokinni kynningu sem stóð frá 1.febrúar til 14.mars. Engar athugasemdir hafa borist og skoðast hún því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
18. (782). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna lóðanna við Mosagötu 1-7.
Bæjarráð Garðabæjar
05
46. (1714). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna lóðanna við Mosagötu 1-7.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
17. fundur
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Mosagata 1-7. Þær breytingartillögur sem um ræðir eru: viðmiðunarbyggingarmagn eykst um 293m2, hæðir hliðrast lítillega,opin bílskýli eru felld út, hæð er bætt ofan á austustu álmu um leið og niðurgrafin hæð er felld út.
Skipulagsnefnd heimilar kynningunni breytingartillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43 gr. og 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.