Blikanes 14, dsk br
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
9. (792). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Blikanes 14 enda verði gert ráð fyrir þremur bílastæðum á lóðinni meðfram lóðarmörkum við götu. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd varðandi bílastæði á lóðinni og er tekið tillit til hennar við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
20. (1737). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Blikanes 14 enda verði gert ráð fyrir þremur bílastæðum á lóðinni meðfram lóðarmörkum við götu. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd varðandi bílastæði á lóðinni og er tekið tillit til hennar við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
9. fundur
Lögð fram, að lokinni grenndarkynningu, umsókn um byggingarleyfi vegna og breytinga á einbýlishúsinu við Blikanes 14. Ein athugasemd hefur borist frá eigendum Blikaness 16 sem hafa áhyggjur af skerðingu sem verður á flatarmáli bílastæðis við breytinguna. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi samþykki byggingarleyfið svo fremi sem gert verði ráð fyrir 3 bílastæðum á lóðinni meðfram lóðarmörkum að götu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
7. (790). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. sömu greinar vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á lóðinni við Blikanes 14.
Bæjarráð Garðabæjar
06
12. (1729). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. sömu greinar vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á ofangreindri lóð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem var vísað í grenndarkynningu á síðasta skipulagsnefndarfundi þann 17.mars sl sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Arnarness.
Þann sama dag felldi úrskurðanefnd umhverfis-og auðlindamála deiliskipulag Arnarness úr gildi.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem byggingarleyfi í ódeiliskipulögðu hverfi í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
08
11. (1728). fundur
Með vísan til niðurstöðu í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem felld er úr gildi ákvörðun um samþykkt deiliskipulags fyrir Arnarness er málinu vísað að nýju til meðferðar skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits neðri hæðar í átt að götu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum húsanna að Blikanesi 11,12,13,15 og 16 sem og Tjaldanesi 11, 13 og 15.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
4. fundur
Lögð fram fyrirspurn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Vísað til frekar skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir byggingarreit framan við núverandi bílageymslu sem er á neðri hæð. Ofan á nýja bílageymslu kæmu svalir. Svipuð útfærsla hefur verið samþykkt í Blikanesi 22. Skipulagsnefnd beinir því til skipulagstjóra að afla umsagnar deiliskipulagsráðgjafa Arnarness um tillöguna.