Beint í efni

Umsókn um byggingarleyfi - Nýhöfn 7

Málsnúmer 1510016

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

45. (1713). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss með 10 íbúðum á lóðinni við Nýhöfn 7.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

17. (781). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

17. (781). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Nýhöfn 7 sem gerir ráð fyrir að atvinnurými verði nýtt sem íbúðarými. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og bæjaryfirvalda samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

43. (1711). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Nýhöfn 7 sem gerir ráð fyrir að atvinnurými verði nýtt sem íbúðarými. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og bæjaryfirvalda samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

15. fundur

Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Sjálands sem gerir ráð fyrir því aðí stað 9 íbúða í fjölbýlishúsinu að Nýhöfn 7 (áður Nýhöfn 13) komi 10 íbúðir. Ekki verði um atvinnuhúsnæði að ræða eins og deiliskipulag heimilar..
Þar sem að einsýnt er að íbúð dragi ekki að sér meiri umferð en atvinnuhúsnæði telur nefndin að grenndarárhrif breytingarinnar séu jákvæð.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands en fellir niður grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og bæjaryfirvalda.