Beint í efni

42. (1710). fundur

03.11.2015
Bæjarráð Garðabæjar

42. (1710). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

03.11.2015

Kl. 08:00 - 08:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1503196

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019)- Álagning gjalda.

Lögð fram drög að tillögu að álagningu útsvars og fasteignagjalda á árinu 2016.

Samkvæmt ákvæði 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 skal sveitarstjórn ákveða fyrir 1. desember ár hvert hvaða hundraðshluti verði lagður á tekjur manna á næsta ári.

Bæjarráð vísar tillögu um álagningu gjalda til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1510380

02

Bréf íbúa við Súlunes varðandi skjólvegg við göngustíg, dags, 26.10.15.

Á fundinum var lagt fram nýtt bréf frá íbúum við Súlunes um sama mál, dags. 2. nóvember 2015.

Í bréfunum er farið fram á að lóðargirðing samsíða hjóla- og göngustíg sem unnið er á svæði milli Hafnafjarðarvegar og baklóða í Súlunesi verði að lágmarki 2 metra hár.

Bæjarráð leggur áherslu á að við útfærslu á hæð lóðargirðingar verði haft samráð við íbúa og það tryggt eins og kostur er að umferð á stígnum valdi íbúum sem minnsta ónæði eða óþægindum.

Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunar vegna fjarmögnunar framkvæmda á árinu 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510347

03

Bréf Elínar Rögnu Þorsteinsdóttir um hljóðvarnir við Sjávargrund, dags. 27.10.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs í tengslum við væntanlega uppbyggingu byggðar við Unnargrund þar sem m.a. er gert ráð fyrir landmótun vegna hljóðvistar.

Málsnúmer 1510360

04

Bréf Garðakórsins um styrk fyrir árið 2016, dags. 28.10.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510374

05

Bréf Sjálfsbjargar um styrk fyrir árið 2016, dags. 29.10.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510361

06

Bréf list- og verkgreinakennara við Hofsstaðaskóla um launakjör, dags. 28.10.15.

Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar hefur Garðabær falið stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til að annast gerð kjarasamninga fyrir hönd sveitarfélagsins. Í umboðinu felst að sveitarfélaginu er óheimilt að gera breytingar, viðbætur og frávik frá gildandi kjarasamningi nema með samþykki stjórnar sambandsins.

Með vísan til þess er bæjarráði óheimilt að fallast á að beiðni bréfritara um að greiða list- og verkgreinakennurum laun með öðrum hætti en samið hefur verið um í viðkomandi kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna félags grunnskólakennara.

María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510319

07

Bréf foreldra á Álftanesi um þörf á leikskólavist fyrir ung börn, dags. 16.10.15.

Bæjarráð telur eigi tímabært að breyta viðmiðum um að yngstu börn á leikskóla séu 12 mánaða.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510314

08

Bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun, dags. 22.10.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalsskipulags. Jafnframt skal bréfritara bent á lausar lóðir í Urriðaholti.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510382

09

Fyrirspurn frá Bjartri framtíð um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Garðabæ, dags. 26.10.15.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Fylgiskjöl