19. (802). fundur
19. (802). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
15.12.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 1. desember 2016 er lögð fram.[line][line]
Dagskrá
Málsnúmer 1612004F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 6/12 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., bréf Lauga varðandi lóð við Sundlaugina við Ásgarð fyrir heilsuræktarstöð og 6. tl., reglur um hvatapeninga 2017.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 5. tl., bréf Lauga varðandi lóð við Sundlaugina við Ásgarð fyrir heilsuræktarstöð og 6. tl., reglur um hvatapeninga 2017.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1612019F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 13/12 ´16.
Forseti vakti athygli á að með vísan til 16. dagskrárliðar, fjárhagsáætlunar 2016 - viðauka 12-19, að fyrir lægi tillaga um að taka á dagskrá fundarins undir þeim lið viðauka 20 vegna launa kennara samkvæmt nýgerðum kjarasamningum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka viðauka 20 á dagskrá og til afgreiðslu á fundinum samkvæmt heimild í 2. mgr. 17. gr. samþykkta um stjórn Garðabæjar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 13. tl., drög að reglum Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Mikil umræða hefur verið í fréttum undanfarið um verulegan skort á félagslegu húsnæði. Í frétt RÚV á þriðjudag var nefnt að Garðabær ætti eina félagslega íbúð fyrir hverja eitt þúsund íbúa meðan Reykjavík ætti 15 og Kópavogur 9. Björt framtíð vill því spyrja um eftirfarandi og óskar vinsamlegast eftir skriflegu svari.
1. Hvað á Garðabær margar félagslegar íbúðir?
2. Hvað eru margir á biðlista eftir félagslegri íbúð í Garðabæ?
3. Hvernig hefur fjöldi félagslegra íbúða í eigu Garðabæjar þróast á undanförnum 2 áratugum?
4. Hefur Garðabær einhver áform um að fjölga félagslegum íbúðum, og ef ekki, hvers vegna ekki?“
Steinþór Einarsson, ræddi 14. tl., viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar og 15, tl., tillögu að viðmiðunarfjárhæðum vegna lækkunar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
María Grétarsdóttir, ræddi 16. tl., fjárhagsáætlun 2016 - viðauka.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., miðsvæði Álftaness - uppbyggingu og endurskoðun deiliskipulags og 14. tl., viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar.
Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., miðsvæði Álftaness - uppbyggingu og endurskoðun deiliskipulags.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 6. tl., miðsvæði Álftaness - uppbyggingu og endurskoðun deiliskipulags.
Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., drög að reglum Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning, 14. tl. viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar og 16. tl., fjárhagsáætlun 2016 - viðauka.
Almar Guðmundsson, ræddi 8. tl., afrit af bréfi Kópavogsbæjar til Sorpu bs. vegna söfnunar plasts og 14. tl., viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 14. tl., viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 8. tl., afrit af bréfi Kópavogsbæjar til Sorpu bs. vegna söfnunar plasts.
Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1611038F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 30/11 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 8. tl., æfingagjöld í Garðabæ 2016-2017.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1611039F
04
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 7/12 ´16.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., stuðning við nemendur í FG.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.
Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og sagði frá úthlutun styrktarsjóðs.
Halldór Jörgensson, kvaddi sér hljóðs og þakkaði fyrir upplýsingar um úthlutun úr styrktarsjóði. Þá ræddi Halldór 2. tl., stuðning við nemendur FG.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls á ný.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1612011F
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 9/12 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1611041F
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 3/12 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1612017F
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 12/12 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1612003F
08
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 8/12 ´16.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., eflingu grunnskólastarfs í Garðabæ.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl. niðurstöður samræmdra könnunarprófa.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1601353
09
Fundargerð stjórnar SHS frá 2/12 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1612080
10
Reglur Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning
Bæjarstjórn samþykkir reglur Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning sem skylt er að veita samkvæmt ákvæði 2. mgr. 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga sem öðlast gildi 1. janúar 2017.
Málsnúmer 1605285
11
Kosning nýs aðalfulltrúa Æ-lista í bæjarráð
Bæjarstjórn samþykkir að Guðrún Elín Herbertsdóttir verði aðalfulltrúi í bæjarráði í stað Halldórs Jörgenssonar.
Málsnúmer 1302243
12
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Sigurður Guðmundsson, fylgdi tillögunni úr hlaði og gerði grein fyrir vinnu skipulagsnefndar við undirbúning að gerð tillögunnar.
Sigurður fjallaði um nokkur meginatriði í tillögu að endurskoðun aðalskipulags og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu um afgreiðslu málsins.
Sigurður þakkaði öllum þeim sem komið hafa að gerð tillögunnar, ráðgjöfum, starfsmönnum og íbúum fyrir þeirra framlag.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi tillögu að endurskoðun aðalskipulags.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um endurskoðun á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 og skal tillagan send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1605502
13
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir vegna lækkunar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega árið 2017.
Halldór Jörgensson, kvaddi sér hljóðs.
Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða eftirfarandi tillögu um viðmiðunarfjárhæðir vegna lækkunar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
Einstaklingar með tekjur árið 2015 allt að kr. 4.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.800.000.
Hjón með tekjur árið 2015 allt að kr. 5.750.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.950.000.