Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 13/12 ´16.

Málsnúmer 1612019F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

19. (802). fundur

Forseti vakti athygli á að með vísan til 16. dagskrárliðar, fjárhagsáætlunar 2016 - viðauka 12-19, að fyrir lægi tillaga um að taka á dagskrá fundarins undir þeim lið viðauka 20 vegna launa kennara samkvæmt nýgerðum kjarasamningum.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka viðauka 20 á dagskrá og til afgreiðslu á fundinum samkvæmt heimild í 2. mgr. 17. gr. samþykkta um stjórn Garðabæjar.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 13. tl., drög að reglum Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.

„Mikil umræða hefur verið í fréttum undanfarið um verulegan skort á félagslegu húsnæði. Í frétt RÚV á þriðjudag var nefnt að Garðabær ætti eina félagslega íbúð fyrir hverja eitt þúsund íbúa meðan Reykjavík ætti 15 og Kópavogur 9. Björt framtíð vill því spyrja um eftirfarandi og óskar vinsamlegast eftir skriflegu svari.

1. Hvað á Garðabær margar félagslegar íbúðir?
2. Hvað eru margir á biðlista eftir félagslegri íbúð í Garðabæ?
3. Hvernig hefur fjöldi félagslegra íbúða í eigu Garðabæjar þróast á undanförnum 2 áratugum?
4. Hefur Garðabær einhver áform um að fjölga félagslegum íbúðum, og ef ekki, hvers vegna ekki?“

Steinþór Einarsson, ræddi 14. tl., viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar og 15, tl., tillögu að viðmiðunarfjárhæðum vegna lækkunar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.

María Grétarsdóttir, ræddi 16. tl., fjárhagsáætlun 2016 - viðauka.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., miðsvæði Álftaness - uppbyggingu og endurskoðun deiliskipulags og 14. tl., viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar.

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., miðsvæði Álftaness - uppbyggingu og endurskoðun deiliskipulags.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 6. tl., miðsvæði Álftaness - uppbyggingu og endurskoðun deiliskipulags.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., drög að reglum Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning, 14. tl. viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar og 16. tl., fjárhagsáætlun 2016 - viðauka.

Almar Guðmundsson, ræddi 8. tl., afrit af bréfi Kópavogsbæjar til Sorpu bs. vegna söfnunar plasts og 14. tl., viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 14. tl., viðræður við Hrafnistu um starfsemi Ísafoldar.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 8. tl., afrit af bréfi Kópavogsbæjar til Sorpu bs. vegna söfnunar plasts.

Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.