23. (1740). fundur
23. (1740). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.06.2016
Kl. 08:00 - 08:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Garðatorg 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG-verktökum, kt. 581198-2589, byggingarleyfi vegna stækkunar á íbúð ofl. að Garðatorgi 2a.
02
Frjóakur 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Athons ehf., kt. 440216-1290 byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss að Frjóakri 9.
03
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2016-2019, 764. mál, dags. 15.06.16.
Lagt fram.
04
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016-2019, 765. mál, dags. 13.06.16.
Lagt fram.
05
Yfirlit yfir stöðu málaflokka janúar - apríl 2016.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir yfirliti um stöðu málaflokka fyrir tímabilið janúar - apríl 2016. Jafnframt lagði fjármálastjóri fram yfirlit um þróun innheimtu útsvars á árunum 2012 - 2016.
Fylgiskjöl
06
Bréf Strætó bs. varðandi leið 23 Ásgarður-Álftanes-Ásgarður, dags. 09.06.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
07
Stefna Húsfélagsins að Löngulínu 2 á hendur Garðabæ til greiðslu bóta vegna vanrækslu við eftirlit með framkvæmdum við byggingu hússins, dags. 06.06.16.
Lögð fram.
08
Tilkynning frá Þjóðskrá Íslands um fasteignamat 2017, dags. 08.06.16.
Lögð fram tilkynning frá Þjóðskrá Íslands um nýtt fasteignamat er gildir fyrir árið 2017.