Umsögn skipulagsnefndar um erindi Strætó bs. vegna leiðar 23 Ásgarður-Álftanes-Ásgarður.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (1743). fundur
Lögð fram umsögn skipulagsnefndar þar sem fram kemur að fyrirhugað sé að loka gatnamótum Gamla Álftanesvegar við Herjólfsbraut og jafnframt bent á að skoða möguleika á nýrri stoppistöð við Álftanesveg.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindi Strætó bs. og upplýsa um stöðu mála.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lagt fram erindi Strætó bs dags 9.júní 2016. Erindinu var vísað til umfjöllunar skipulagsnefndar í bæjarráði.
Skipulagsnefnd bendir áð við lokun Gamla Álftanesvegar við Herjólfsbraut mun leið strætó vera um nýja Álftanesveginn. Í því sambandi er rétt að skoða hvort hægt sé að koma fyrir stoppistöðvum beggja vegna Álftanesvegar í ca 100 m fjarlægt frá hringtorgi sem væri í beinum göngustígatengingum við undirgöng.
Bæjarráð Garðabæjar
03
23. (1740). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.