Beint í efni

Hleinar að Langeyrarmölum, skilnaðarmál.

Málsnúmer 1504169

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skiptingu á sameiginlegu deiliskipulagi Hafnarfjarðar og Garðabæjar fyrir Hleina að Langeyrarmölum miðað við bæjarmörk sveitarfélaganna. Nýtt deiliskipulag innan bæjarmarka Garðabæjar verður fyrir svæði kennt við Hleina, Bala og Bakkastekk.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16 (1684). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skiptingu á sameiginlegu deiliskipulagi Hafnarfjarðar og Garðabæjar fyrir Hleina að Langeyrarmölum miðað við bæjarmörk sveitarfélaganna. Nýtt deiliskipulag innan bæjarmarka Garðabæjar verður fyrir svæði kennt við Hleina, Bala og Bakkastekk.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiilskipualgs Hleina að Langeyrarmölum sem gerir ráð fyrir því að deiliskipulagi sé skipt upp á sveitarfélagamörkum í tvær sjálfstæðar deiliskipulagsáætlanir. Tillaga að nýju deiliskipulagi Garðabæjarmegin verði kallað Deiliskipulag Hleina, Bala og Bakkastekkjar. SKipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga.