Brekkuskógar 1, safnaðarheimili grenndarkynning
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna umsókn um framkvæmdaleyfi vegna 20 bílastæða við lóðina að Brekkuskógum 1 sem nýtt verða fyrir starfsemi safnaðarheimilis, sbr. 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16 (1684). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna umsókn um framkvæmdaleyfi vegna 20 bílastæða við lóðina að Brekkuskógum 1 sem nýtt verða fyrir starfsemi safnaðarheimilis, sbr, 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Lögð fram tillaga að 20 bílastæðum vestan við íbúðarhúsið að Brekkuskógum 1 sem Bessastaðasókn hyggst nota sem safnaðarheimili. Skipulagsnefnd samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir gerð bílastæðanna að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 5.mgr. 13.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Fyrir liggur að íbúar sem grenndarkynning nær til hafa lýst því yfir skriflega að þeir gera ekki athugasemd við gerð bílastæðanna og er skipulagsstjóra því heimilt að stytta grenndarkynningu í samræmi við 3.mgr. 44.gr. Skipulagslaga. Grenndarkynna skal öllum íbúum við Brekkuskóga ásamt Hofi.