Beint í efni

Hagaflöt 22, fyrirspurn

Málsnúmer 1411198

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

10. fundur

Lögð fram fyrirspurn um hugmyndir að viðbyggingum við íbúðarhúsið að Hagaflöt 22 og hvort að þær teljist í samræmi við deiliskipulag. Svar: Framlögð tillaga er eftir því sem best verður séð í samræmi við deiliskiplag og kallar því ekki á deiliskiplagsbreytingu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

18. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort til álita komi að breyta deiliskipulagi Flata með þeim hætti að byggingarreitur yrði stækkaður að götu fyrir framan bílageymslu og að vikið yrði frá ákvæði deiliskipulags um lengd bílageymslu að lóðarmörkum úr 7,5 m í 10, 4 m.$line$Skipulagsnefnd er ekki reiðubúin til þess að stækka byggingarreiti í nýsamþykktu deiliskipulagi í átt að götu og er ekki reiðubúin til þess að breyta ákvæðum um lengd bílageymslu. Svarið er því neikvætt.