Beint í efni

3. (1769). fundur

24.01.2017
Bæjarráð Garðabæjar

3. (1769). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

24.01.2017

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - varamaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1701198

01

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi tilnefningar í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ, dags. 11.01.17.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar sem fyrirhugaður er 2. febrúar 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1701237

02

Bréf Landsambands ísl. frímerkjasafnara um Norræna frímerkjasýningu vorið 2018, dags. 19.01.17.

Í bréfinu er farið fram á afnot af íþróttamiðstöðinni Ásgarði undir Norræna frímerkjasýningu á vordögum 2018.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1701246

03

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur um fornleifarannsóknir og -skráningar, dags. 20.01.17.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1410266

04

Framkvæmdir við Urriðaholtsskóla - staða mála

Bæjarstjóri gerði grein fyrir að í undirbúningi er að auglýsa útboð í lok janúar vegna lóðarframkvæmdanna og í byrjun febrúar verður auglýst að nýju útboð vegna fullnaðarfrágangs að utan og framkvæmda innanhúss.

Bæjarstjóri upplýsti að á vef Garðabæjar kemur fram að stefnt er að opnun skólans á þessu ári.

Málsnúmer 1701130

05

Fjölmiðlaskýrsla 2016 - umfjöllun um Garðabæ í fjölmiðlum.

Upplýsingastjóri gerði grein fyrir fjölmiðlaskýrslu 2016 en þar kemur m.a. fram umfang umfjöllunar um Garðabæ eftir tegundum fjölmiðla og samanburður við umfjöllun árið 2015.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1701265

06

Bréf Urriðaholts um leyfi til landmótunar á lóðinni við Kauptún 1, dags. 19.01.17.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðinni við Kauptún 1 og vísar í því sambandi til 2. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 ásamt því að benda á að framkvæmdin er í samræmi við skilmála deiliskipulags Kauptúns.

Fylgiskjöl