4. (1721). fundur
4. (1721). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
02.02.2016
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf Ólafs Harðarsonar o.fl. varðandi Hausastaði, dags. 21.01.16.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
02
Bréf Skátafélagsins Vífils og Hjálparsveitar skáta um niðurfellingu fasteignagjalda 2016, dags. 22.01.16.
Bæjarráð samþykkir að veita Skátafélaginu Vífli og Hjálparsveit skáta styrk að fjárhæð kr. 3.343.736 til greiðslu fasteignagjalda árið 2016.
03
Minnisblað Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu um starfsemi heimahjúkrunar á suðursvæði,dags. 21.01.16.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með fulltrúum Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem gerð var grein fyrir væntanlegum skipulagsbreytingum sem eiga að hafa í för með sér hagræðingu og bætta þjónustu.
Fylgiskjöl
04
Bréf Hilde Berit Hundstuen varðandi álagningu rotþróar- og sorphirðugjalda 2014-2016, dags. 18.01.16.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
05
Bréf Hilde Berit Hundstuen um hraðahindrun í Hraunhóla, dags. 18.01.16.
06
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um vatnsveitur sveitarfélaga, 400. mál, dags. 27.01.16.
07
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, 404. mál, dags. 27.01.16.
08
Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytis um breytingu á byggingareglugerð nr. 112/2012, dags. 22.01.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og felur bæjarstjóra að taka málið upp innan vettvangs stjórnar SSH.
Fylgiskjöl
09
Bréf Strætó bs. varðandi hönnunarreglur fyrir stoppistöðvar Strætó, dags. 28.01.16.
10
Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu um skýrsla eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga 2014-2015, dags. 21.01.16.
11
Bréf foreldra barna í grunnskólum Hjallastefnunnar í Garðabæ um skólamál Hjallastefnunnar, dags. 28.01.16.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með foreldrum og fundi með forsvarsmönnum Hjallastefnunnar um starfsemi skólans.
Fylgiskjöl
12
Bréf Aflmarks vegna forkaupsréttar Garðabæjar á fiskiskipi sem hefur heimilisfesti í Garðabæ, dags. 28.01.16.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að falla frá forkaupsrétti vegna sölu á vélbátnum Guðbjörgu Maríu SH-242.
Fylgiskjöl
13
Erindi Hjálparsveitar skáta um endurnýjun samnings, dags. 25.09.15.
Bæjarráð samþykkir að við endurnýjun samnings við Hjálparsveit skáta verði samningsfjárhæð kr. 4.100.000 og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
14
Bréf Orkustofnunar varðandi umsókn Iceland Resources ehf. um leyfi til leitar og rannsókna á málmum á Reykjanesskaga, dags. 22.01.16.
Bæjarráð vísar bréfinu á þessu stigi til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
15
Endurskoðun á reglum um Þróunarsjóð grunnskóla
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á reglum um Þróunarsjóð grunnskóla.
Fylgiskjöl
16
Drög að skilmálum vegna auglýsingar um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog.
Bæjarráð samþykkir skilmálana og felur bæjarstjóra að auglýsa úthlutun lóðarinnar.