Beint í efni

Niðurstöður Rannsóknar og greiningar 2016

Málsnúmer 1602016

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

19. fundur

Skýrsla lögð fram. Mikilvægt er að byrja forvarnir einnig á leikskólastiginu.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

4. fundur

Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1602016 niðurstöður Rannsóknar og greiningar 2016.
Lögð er fram skýrsla Rannsóknar og greiningar um líðan ungs fólks í Garðabæ og hún rædd. Skýrslan byggir á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í 8. til 10. bekk á Íslandi í febrúarmánuði árið 2016.
Ánægjulegt er að líðan og staða ungs fólks í Garðabæ er almennt góð miðað við landið. Fram kemur að samvera með foreldrum hefur aukist og að vímuefnaneysla er svipuð. Ástæða er til að huga nánar að því að greinanleg eru aukin kvíða- og þunglyndiseinkenni sérstaklega hjá stúlkum.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

22. fundur

Ánægjulegt að líðan og staða ungs fólks í Garðabæ er heilt yfir góð miðað við landið. Ákveðin atriði er þó vert að skoða nánar og skólanefnd mun kalla ungmenni á sinn fund til þess að heyra þeirra raddir.

Bæjarráð Garðabæjar

04

16. (1733). fundur

Lögð fram skýrsla Rannsóknar og greiningar um líðan ungs fólks í Garðabæ. Skýrslan byggir á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í 8. til 10. bekk á Íslandi í febrúarmánuði árið 2016.

Bæjarráð vísar skýrslunni til kynningar í fastanefndum bæjarins sem fjalla um málefni barna og ungmenna.

Fylgiskjöl