4. fundur
4. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
26.05.2016
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - varamaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Umsókn um félagslega íbúð
Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1604050 umsókn um félagslega leiguíbúð. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Umsókn um félagslega íbúð
Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1603239 umsókn um félagslega leiguíbúð. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Umsókn um sérstakar húsaleigubætur
Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1603186 umsókn um sérstakar húsaleigubætur. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldrar
Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1603059 beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldrar. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1603289 umsókn um fjárhagsaðstoð. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
06
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1605220, umsókn um fjárhagsaðstoð. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
07
Niðurstöður Rannsóknar og greiningar 2016
Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1602016 niðurstöður Rannsóknar og greiningar 2016.
Lögð er fram skýrsla Rannsóknar og greiningar um líðan ungs fólks í Garðabæ og hún rædd. Skýrslan byggir á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í 8. til 10. bekk á Íslandi í febrúarmánuði árið 2016.
Ánægjulegt er að líðan og staða ungs fólks í Garðabæ er almennt góð miðað við landið. Fram kemur að samvera með foreldrum hefur aukist og að vímuefnaneysla er svipuð. Ástæða er til að huga nánar að því að greinanleg eru aukin kvíða- og þunglyndiseinkenni sérstaklega hjá stúlkum.
08
Skipan talsmanns fyrir börn í barnaverndarmálum
Tekið er fyrir og rætt mál nr. 1605096 erindi Barnaverndarstofu varðandi skipan talsmanns fyrir börn í barnaverndarmálum. Með bréfi sínu dags. 3. maí 2016 vekur Barnaverndarstofa athygli barnaverndarnefnda á erindi umboðsmanns barna til félags- og húsnæðismálaráðherra dags. 29. apríl 2016 varðandi skipan talsmanna í barnaverndarmálum. Í bréfinu er lýst áhyggjum af því að börnum sé sjaldan skipaður talsmaður. Brýnt er fyrir nefndunum að tryggja það að í barnaverndarmálum fari fram eiginlegt mat á því hvort skipa skuli börnum talsmann.