Bústaðavegur/Reykjanesbraut, dsk br lýsing í Rvk.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
18. (782). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi athugasemdir við tillögu um gatnamót samkvæmt tillögu Reykjavíkur að breytingu á deiliskipulagi Bústaðavegar og Reykjanesbrautar og að jafnframt verði send fyrirspurn um málið til umfjöllunar svæðisskipulagsnefndar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
46. (1714). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi athugasemdir við tillögu um gatnamót samkvæmt tillögu Reykjavíkur að breytingu á deiliskipulagi Bústaðavegar og Reykjanesbrautar og að jafnframt verði send fyrirspurn um málið til umfjöllunar svæðisskipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
17. fundur
Skipulagsstjóri greinir frá kynningu Reykjavíkurborgar á lýsingu vegna deiliskipulags við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Í auglýsingu kynningarinnar kemur fram sá skilningur Reykjavíkurborgar að í nýsamþykktu svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sé fallið frá gerð mislægra gatnamóta á svæðinu. Skipulagsnefnd beinir þeirri spurningu til svæðisskipulagsnefndar hvort nefndin sé sammála þeirri túlkun Reykjavíkur borgar að svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins geri ótvírætt í skyn að ekki sé gerð krafa á mislægum gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Það er skilningur skipulagsnefndar Garðabæjar að sátt sé um það að útfærsla Reykjanesbrautar amk kosti frá Miklubraut og til suðurs sé með mislægum gatnamótun til að tryggja stöðu brautarinnar sem meginstofnbraut bílaumferðar á höfuðborgarsvæðinu.