Urriðaholtsstræti 6-8 og 12, br á dsk Viðskiptastrætis 1.áf.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (790). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðanna nr. 6-8 og 12 við Urriðaholtsstræti, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (1729). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðanna nr. 6-8 og 12 við Urriðaholtsstræti sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts viðskipatstrætis 1.áfangi. Kynning tillögunnar fór fram frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist en ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta í samræmi við 2.mgr. 41.gr.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns að lokinni kynningu sem stóð frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
18. (782). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 6-8 og 10-12. Í tillögunni er gert ráð fyrir að lóðin við Urriðaholtsstræti 6-8 stækki en lóðin Urriðaholtsstræti 10-12 minnki sem því nemur og byggingarreitur skerðist.
Bæjarráð Garðabæjar
07
46. (1714). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 6-8 og 10-12. Í tillögunni er gert ráð fyrir að lóðin við U 6-8 stækki en lóðin U 10-12 minnki sem því nemur og byggingarreitur skerðist.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
17. fundur
Lögð fram tillaga Urriðaholts ehf að breytingu deiliskpulags Urriðaholts viðskiptastrætis sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 6-8 og 10-12. Breytingin gerir ráð fyrir því að lóðin nr.6-8 stækkar til austurs um 691 m2 og lóðin nr.10-12 minnkar sem því nemur. Byggingarreitur lóðar nr.10-12 skerðist. Á þeim hluta lóðar sem bætist við lóð nr.6-8 verða 10 bílastæði.
Skipulagsnefnd heimilar kynningunni breytingartillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43 gr. og 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.