Kauptún, lóð OR. Dsk br Kauptún.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns. Kynning tillögunnar fór fram frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Lögð fram greinargerð unnin á vegum skipulagsstjóra þar sem lagðar eru fram tillögur að viðbrögðum við athugasemdum og svör við þeim.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með þeim lagfæringum sem lagðar eru til í greinargerð í samræmi við 2.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Skipulagsnefnd heimilar auglýsingu tillögunnar með þeim breytingum sem fram koma undir fundarlið nr. 1 í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga. Auglýsa skal breytingartillöguna samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til nýrrar lóðar fyrir dælustöð OR. Forkynning tillögunnar var auglýst með áberandi hætti þann 11.desember og stóð hún til 6.janúar. Tillaga að aðalskipulagsbreytingu var forkynnt samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns. Haldinn var sérstakur kynningarfundur fyrir rekstaraðila í Kauptúni. Lagðar fram ábendingar sem borist hafa á forkynningartíma. Tillögunni ásamt ábendingum vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissvið ásamt öðrum öðrum tillögum að breytingu deiliskipulags.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
18. (782). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna nýrrar lóðar fyrir dælustöð.
Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2 og 3.
Bæjarráð Garðabæjar
06
46. (1714). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna nýrrar lóðar fyrir dælustöð.
Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2 og 3.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
17. fundur
Skipulagsnefnd heimilar forkynningu tillögu fyrir OR lóð í Kauptúni í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga. Tillagan skal vera hluti af heildarbreytingartillögu deiliskipulags Kauptúns ásamt með breytingum á lóð nr. 1 nr. 2 ,nr. 3 og nr. 4.