Beint í efni

Urriðaholt-viðskiptastræti, breyting á deiliskipulagi v.Kauptúns 1.

Málsnúmer 1601290

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (790). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kauptún 1, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (1729). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kauptún 1 sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts viðskipatstrætis 1.áfangi. Kynning tillögunnar fór fram frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist en ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta í samræmi við 2.mgr. 41.gr.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns að lokinni kynningu sem stóð frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-viðskiptastrætis sem nær til svæðis við suðurmörk deiliskipulagssvæðis frá gatnamótum við Kauptún og að Jónasartorgi.
Breytingin gerir ráð fyrir því að mörk deiliskipulagsins breytist lítillega svo og lega stígs meðfram lóðinni Kauptún 1. Breytingartillaga á lóðinni Kauptún 1 kallar á þessa breytingartillögu. Skipulagsnefnd heimilar auglýsingu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga. Auglýsa skal breytingartillöguna samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags og tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns.