Opnun tilboða í snjómokstur á gangstéttum og göngustígum.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (1753). fundur
Eftirfarandi tilboð í vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða í Garðabæ eru lögð fram.
Garðlist ehf. kr. 19.356.000
Hreinsitækni ehf.kr. 35.779.200
Kostnaðaráætlun kr. 31.500.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
27. (1744). fundur
Eftirfarandi tilboð lögð fram.
Hilmar D. Ólafsson ehf. kr. 56.490.000
Dráttarbílar ehf. kr. 174.480.000
Bílasmiðjan kr. 115.471.800
Íslenska Gámafélagið kr. 62.481.600
Kostnaðaráætlun kr. 63.000.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Bæjarráð Garðabæjar
03
12. (1729). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarverkfræðings um að segja upp samningi við GT-hreinsun, ehf. um snjómokstur og hálkuvörn í Garðabæ, dags. 13. desember 2011. Heimild til uppsagnar byggir á gr. 1.4 í útboðsskilmálum og skal uppsögnin taka gildi 1. október 2016 enda hafi uppsögn borist samningsaðila fyrir 1. maí sama ár.
Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að undirbúa gerð nýrra útboðsgagna vegna nýs útboðs á snjómokstur og hálkuvörn í Garðabæ.