27. (1744). fundur
27. (1744). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
12.07.2016
Kl. 08:00 - 08:25
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Breiðakur 1-7 Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HH-byggingum ehf., kt. 441192-2159, byggingarleyfi vegna fjögurra raðhúsa á lóðinni nr. 1-7 við Breiðakur.
02
Breiðakur 9-15 Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HH-byggingum ehf., kt. 441192-2159, byggingarleyfi vegna fjögurra raðhúsa á lóðinni nr. 9-15 við Breiðakur.
03
Hraungata 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingarfélaginu Boga ehf., kt. 600100-2620 byggingarleyfi vegna átta íbúða fjölbýlishúss á lóðinni nr. 13 við Hraungötu.
04
Seinakur 2-Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Tjarnarbrekku ehf. kt. 510805-1000 byggingarleyfi vegna einbýlishúss á lóðinni nr. 2 við Seinakur.
05
Brekkugata 5 - 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna fjögurra raðhúsa á lóðinni nr. 5 - 11 við Brekkugötu.
06
Bréf Mannvits ehf. varðandi leyfi fyrir uppsetningu vatnshæðarmæla í Urriðakotsvatni og Vífilsstaðavatni, dags. 01.07.16.
Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við uppsetningu á vatnshæðarmælum í Urriðakotsvatni og Vífilsstaðavatni í þeim tilgangi að hafa eftirlit með vatnsvinnslu í Vatnsendakrikum og mögulegu samspili á vinnslu þar og grunnvatnshæðar á vinnslusvæði Vatnsveitu Hafnarfjarðar í Kaldárbotnum.
Fylgiskjöl
07
Bréf staðarhaldara á Bessastöðum um leyfi til framkvæmda á Bessastaðanesi við endurheimt votlendis, dags. 06.07.16.
Bæjarráð samþykkir að veita leyfi vegna framkvæmda við endurheimt votlendis á Bessastaðanesi sem eru í samræmi við áætlanir í deiliskipulagi er gildir fyrir Bessastaði.
Fylgiskjöl
08
Bréf Vegagerðarinnar varðandi úthlutun úr styrkvegasjóði, dags. 28.06.16.
Lagt fram bréf Vegagerðarinnar um úthlutun styrks að fjárhæð kr. 1.700.000 til framkvæmda við bílastæði við Hlíðarveg í Heiðmörk.
Fylgiskjöl
09
Opnun tilboða í snjómokstur og hálkuvarnir
Eftirfarandi tilboð lögð fram.
Hilmar D. Ólafsson ehf. kr. 56.490.000
Dráttarbílar ehf. kr. 174.480.000
Bílasmiðjan kr. 115.471.800
Íslenska Gámafélagið kr. 62.481.600
Kostnaðaráætlun kr. 63.000.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
10
Tilboð í kaup á fasteigninni Holt á Garðaholti, dags. 08.07.16.
Fyrir liggur samþykki seljanda á kauptilboði að fjárhæð kr. 30.000.000 í íbúðarhús ásamt útihúsum að Holti Garðaholti.
Bæjarráð samþykkir ofangreint kauptilboð.