Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á skipulagi Ása og Grunda vegna raðhúsalóða við Unnargrund.

Málsnúmer 1504287

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

38. (1706). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga um breytingu á skipulagi Ása og Grunda, sem gerir ráð fyrir auknu byggingarmagn sjö raðhúsa af 25 hækki úr 130 m2 í 150 m2 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

12. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarmagn 7 raðhúsa aukist úr 130 m2 í 150 m2 til jafns við önnur raðhús.

Tillagan var í kynningu frá 17. júlí til 28. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

9. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna byggðar eldri borgara við Unnargrund verði auglýst til kynningar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.

Bæjarráð Garðabæjar

04

20. (1688). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna byggðar eldri borgara við Unnargrund verði auglýst til kynningar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

6. fundur

Lögð fram umsókn Byggingarsamvinnufélags eldri borgara í Garðabæ um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til húsa við Unnargrund. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarks byggingarmagn 7 húsa aukist úr 130 m2 í 150 m2 til jafns við önnur hús. Skipulagsnefnd minnir á að við gerð deiliskipulags var það ósk BSFEB að byggingarmagn yrði skilgreint með þessum hætti. Heildaraukning á byggingamagni er því 140 m2. Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga.