Beint í efni

Kattahald - kanínur og vargfuglar

Málsnúmer 1311629

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

35. fundur

Lögð fram fundargerð frá fundi SSH þann 27.11.13 vegna samræmingar á reglum um kattahald og viðbrögðum gegn ágangi kanína og sílamáfa. $line$Drög að ályktun fulltrúa umhverfissviða sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um kanínur lögð fram.

Umhverfisstjóri greindi nefndarmönnum frá sjónarmiðum sem rædd voru á fundinum. $line$$line$Varðandi:$line$1. Samræmdar kattasamþykktir sveitarfélagana var talið heppilegra að beina því til heilbrigðiseftirlita svæðanna að þau beittu sér fyrir endurnýjum hjá þeim sveitarfélögum sem ekki hefðu nýlega uppfært samþykktir; að krefjast örmerkinga, skráningar,geldinga fresskatta og heimilda til handsömunar. $line$2. Lausagöngu kanína voru fulltrúar sveitarfélaganna sammála um að ótækt sé að kanínur fjölgi sér á höfuðborgarsvæðinu, sbr. ályktun Náttúrufræðistofnunnar Íslands að "útrýma beri kanínum úr íslenskri náttúru".$line$3. Varðandi sílamáfa voru fundarmenn sammála um að ekki þýddi að einstaka sveitarfélög hröktu sílamáfa frá sér, því þeir setja sig niður þá á öðrum svæðum. Ekki var fallist á átak í eyðingu sílamáfa.