7. fundur
7. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
23.10.2014
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - varamaður
- Guðrún Hrefna Sverrisdóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Eva Ósk Ármannsdóttir
Dagskrá
01
Fyrirspurn um sambýli og NPA
Tekið er fyrir mál nr. 1410186, fyrirspurn Ingvars Arnarsonar, um sambýli og NPA (notandastýrða persónulega aðstoð). Sólveig Steinsson, umsjónarþroskaþjálfi lagði fram og gerði grein fyrir minnisblaði um málið. Fjölskylduráð fjallar um málið.
02
Kynning á málefnum fatlaðs fólks
Tekið er fyrir mál nr. 1410181, kynning á málefnum fatlaðs fólks. Sólveig Steinsson, umsjónarþroskaþjálfi, kynnir málaflokkinn og svarar fyrirspurnum.
03
Umsókn um félagslega íbúð
Tekið er fyrir mál nr. 1407487, umsókn um félagslega leiguíbúð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr. 1410025, málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
06
Umsókn um fjárhagsaðstoð vegna skuldar við frístundaheimili
Málið frestað til næsta fundar.
07
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr. 1409473, málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
08
Endurskoðun forvarnastefnu 2013
Tekið er fyrir mál nr. 1310506, drög að forvarnarstefnu Garðabæjar. Fjölskylduráð fagnar drögunum og þeim áherslum sem þar koma fram.
09
Landsfundur jafnréttisnefnda
Tekið er fyrir mál nr. 1401521, bréf bæjarráðs varðandi landsfund jafnréttisnefnda sem haldinn var í Reykjavík 18.-19. sept. sl. Bréfið er lagt fram. Formaður upplýsir að formaður forvarnar- og mannréttindanefndar og mannauðsstjóri sóttu fundinn.
10
Ungt fólk 2013
Tekið er fyrir mál nr. 1311486, erindi bæjarráðs dags. 16.9.14 þar sem bréfi Mennta- og menningarmálaráðuneytis dags. 9. sept. 2014 varðandi niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni "Ungt fólk 2013" er vísað til ráðsins. Formaður kynnir helstu niðurstöður rannsóknarinnar.
11
Samningur um Sprotasjóðsverkefnið: Kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ
Óskað eftir umsögn
Lögð fram til kynningar drög að verklagi Garðabæjar vegna vanrækslu, ofbeldis gegn börnum og áhættuhegðunar. Á fundi bæjarráðs 14. október sl. var erindi um innleiðingu verkefnisins vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2015. Fjölskylduráð mælir með að unnið verði að gerð verklags- og fræðsluáætlunar um ofangreint málefni hjá stofnunum Garðabæjar sem koma að vinnu með börnum og unglingum í bæjarfélaginu.