16. fundur
16. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Garðaskóla
03.11.2015
Kl. 11:30 - 13:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hildur Jakobína Gísladóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigríður Guðrún Guðmundsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1509327
01
Skýrslu um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með skýrsluna og þá sérstaklega að börnum verði gert að stunda nám sitt í einum grunnskóla.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1309668
02
Úr grunnskóla í framhaldsskóla
Lagt fram til kynningar. Skólanefnd leggur áherslu á mikilvægi tengingar á milli skólastiga og að haldið verði áfram að styrkja samstarfið um nemandann.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1306038
03
Samningur um Sprotasjóðsverkefnið: Kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ
Kynning á verklagi vegna gruns um vanrækslu, ofbeldi eða áhættuhegðun barna.
Skólnefnd fagnar verklaginu og bindur miklar vonir við innleiðingu og útfærslu verkferlanna hjá stofnunum og félagasamtökum í bænum. Rætt um að tengja foreldrasamfélagið inn í verkefnið hugsanlega í gengum Grunnstoð.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510193
04
Undirbúningsvika á tómstundaheimili fyrir nemendur sem hefja nám í l. bekk.
Tillaga frá umsjónarmanni Regnbogans um undirbúningsviku á tómstundaheimili fyrir nemendur sem hefja nám í 1. bekk.
Skólanefnd tekur jákvætt í erindið út frá sjónarhóli barnsins og aðlögunarferli þess í skóla. Skóladeild falið að afla upplýsinga um kostnað vegna þessa fyrir alla skóla bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1401493
05
Ytra mat á grunnskólum
Aðgerðaáætlun Barnaskóla Hjallastefnunnar vegna ytra mats
Lagt fram til kynningar og skóladeild falið að fylgja aðgerðaráætluninni eftir.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510192
06
Starfsáætlanir grunnskóla 2015-2016
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með metnaðarfullt starf grunnskólanna í Garðabæ.
Fylgiskjöl
- Starfsáætlun Sjálandsskóla 2015_2016.pdf
- Starfsáætlun Garðaskóla 2015-2016.pdf
- starfsáætlun vífilsskóla_2015-2016.pdf
- Starfsáætlun Hofsstaðaskóla 2015-2016.pdf
- Starfsáætlun Flataskóla 2015- 2016.pdf
- starfsáætlun Barnaskólans 2015-2016.pdf
- Starfsáætlun Álftanesskóla 2015-2016.pdf
- Alþjóðaskólinn Starfsáætlun 15-16.docx
Málsnúmer 1510381
07
Læsi - forsenda náms
Upplýsingar frá skólunum varðandi lestrarkennslu
Skólanefnd þakkar skólunum ítarlegar upplýsingar og leggur áherslu á mikilvægi læsis, samanburðarhæfra upplýsinga og viðmiða um árangur og inngrip.
Fylgiskjöl
- Lestrarstefna_1.-7.b.2014.docx
- Til skólanefndar frá Flataskóla.docx
- Lestur svar Hofsstaðaskóla til skólanefndar.docx
- lestrarstefna álftanesskóli .pdf
- Læsistefna Garðaskóla-til skólanefndar jan 2015.pdf
- Lestur vor 2015 Álftanesskóli.docx
- svör barnaskóli læsi.htm
- lestrarstefna Hofsstaðaskóli.pdf
- Skólanámskrá_læsi.docx
- mælingar á læsi
Málsnúmer 1510389
08
Kynning á Garðaskóla
Nefndarmenn fagna því að fá að kynnast skólastarfinu með þessum hætti.