Beint í efni

2. fundur

22.10.2015
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

2. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

í Hönnunarsafni við Garðatorg

22.10.2015

Kl. 12:00 - 13:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Margrét Björk Svavarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1505136

01

Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019

Stjórn fór yfir Stefnumótunarskjalið og ræddi breytingar, forstöðumanni falið að ganga frá því svo megi ljúka stefnumótun á næsta fundi stjórnar í desember.

Málsnúmer 1510239

02

Fundur um málefni safnsins í Mennta- og menningarráðuneyti

Formaður stjórnar skýrði frá fundi sínum og bæjarstjóra Garðabæjar með Mennta- og menningarmálaráðherra ásamt starfsfólki safnaskrifstofu ráðuneytisins. Fundurinn var gagnlegur, sjónarmið Garðabæjar um rekstur safnsins og þáttöku ríkisins í því hlutu jákvæðar undirtektir. Einnig var farið yfir þann kostnað sem ríkið skuldbatt sig til að greiða til nýbyggingar og hvernig það framlag verði reiknað og greitt til safnsins á næstu árum.

Málsnúmer 1510238

03

Staða reksturs

Forstöðumaður safnsins lagði fram tölur um stöðu reksturs frá 1. sept. Tekjur og kostnað. Farið var yfir helstu kostnaðarþætti og skýrt frá vinnu við áætlanagerð næsta árs.

Málsnúmer 1510240

04

Önnur mál (stjf. 22.10.2015)

M.a.:Sýning Steinunnar Marteinsdóttur í janúar - staða á kaupum leirsafns - ósk Norræna hússins um samstarf vegna sýningar - Hönnunarverðlaun 2015 - Sýningardrög fyrir 2016

Forstöðumaður skýrði frá verkefnum sem eru framundan og í gangi, m.a. undirbúningur á sýningu Steinunnar Marteinsdóttur í janúar. Engin fyrirhuguð sérsýning á haustmánuðum því aftara sýningarrýmið er tímabundið lagt undir skráningar- og rannsóknarvinnu. Safngestir hafa kynnt sér starfsemina þannig og verið ánægðir. Í framhaldi var rætt um öflun safngripa. Formaður stjórnar hefur rætt við Góða hirðinn um meira samstarf og forstöðumanni falið að skoða möguleika þar. Forstöðumaður skýrði frá sýningunni sem verður opnuð á HönnunarMars. Þrír hönnuðir sem hafa verið að vekja athygli, úr sitt hverri greininni: Fatahönnuðurinn Aníta Hirlekar, keramikerinn Bjarni Viðar Sigurðsson og skartgripahönnuðurinn Helga Mogensen hefur verið boðið að sýna saman. Ekki gafst tími til að taka fleira fyrir undir liðnum Önnur mál.