Beint í efni

Önnur mál (stjf. 22.10.2015)

Málsnúmer 1510240

Ferill máls

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01

2. fundur

M.a.:Sýning Steinunnar Marteinsdóttur í janúar - staða á kaupum leirsafns - ósk Norræna hússins um samstarf vegna sýningar - Hönnunarverðlaun 2015 - Sýningardrög fyrir 2016

Forstöðumaður skýrði frá verkefnum sem eru framundan og í gangi, m.a. undirbúningur á sýningu Steinunnar Marteinsdóttur í janúar. Engin fyrirhuguð sérsýning á haustmánuðum því aftara sýningarrýmið er tímabundið lagt undir skráningar- og rannsóknarvinnu. Safngestir hafa kynnt sér starfsemina þannig og verið ánægðir. Í framhaldi var rætt um öflun safngripa. Formaður stjórnar hefur rætt við Góða hirðinn um meira samstarf og forstöðumanni falið að skoða möguleika þar. Forstöðumaður skýrði frá sýningunni sem verður opnuð á HönnunarMars. Þrír hönnuðir sem hafa verið að vekja athygli, úr sitt hverri greininni: Fatahönnuðurinn Aníta Hirlekar, keramikerinn Bjarni Viðar Sigurðsson og skartgripahönnuðurinn Helga Mogensen hefur verið boðið að sýna saman. Ekki gafst tími til að taka fleira fyrir undir liðnum Önnur mál.