1. fundur
1. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
í Hönnunarsafni við Garðatorg
19.05.2015
Kl. 12:15 - 13:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - formaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
- Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - varamaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Erling Ásgeirsson
Dagskrá
Málsnúmer 1505139
01
Niðurstaða 2014 og staða
Forstöðumaður kynnti niðurstöður rekstrar safnsins 2014 og skýrði frá helstu kostnaðarþáttum. Farið var yfir fjárhagsstöðuna fyrstu rúmu fjóra mánuði ársins.
Málsnúmer 1505136
02
Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019
Þann 25. febrúar síðastliðinn vann stjórn að stefnumótun safnsins 2015-2019. Forstöðumaður lagði fram drög að texta.
Málsnúmer 1505134
03
Geymilegir hlutir - Sýningar safnsins
Starfsemi - næstu verkefni
Forstöðumaður sagði frá undirbúningi að næstu sýningu safnsins sem skal standa sem upplag að fastri sýningu í nokkurn tíma. Aftari hluti sýningarrýmisins verður nýttur í sumar til að skrá stór söfn sem safnið hefur eignast. Þannig gefst gestum tækifæri til að sjá vinnurými og sumarstarfsfólk og annað starfsfólk getur sagt frá vinnu við safnskráningu þegar gestir skoða safnið. Sýningin er einnig sett upp til hliðsjónar af vinnu sem hefst í haust á fyrirhugaðri bókaútgáfu á hápunktum úr safneign safnsins. Forstöðumaður sagði einnig frá frekara samstarfi við Gljúfrastein og Heimilisiðnaðarsafninu á farandsýningu á lopapeysunni. Barnahorn verður sett upp í sumar í tengslum við safnmunasýninguna.
Málsnúmer 1505140
04
Önnur mál (stjf. 19.5.2015)
M.a. Styrkir úr Safnasjóði - lopapeysuskýrsla - þáttaka í NORDIK ráðstefnu - erindi um íslenska hönnun í Norræna Vatnslitasafninu - gjöf Einars Guðmundssonar á leirkeri sem fór á Heimssýninguna 1939 í New York
Styrkir úr Safnasjóði - lopapeysuskýrsla - þáttaka í NORDIK ráðstefnu - erindi um íslenska hönnun í Norræna Vatnslitasafninu - gjöf Einars Guðmundssonar á leirkeri sem fór á Heimssýninguna 1939 í New York
Málsnúmer 1302243
05
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4.desember 2014 tillögu að lýsingu gerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010.$line$Í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010 og gr. 4.2.4. í Skipulagsreglugerð nr.90/2013 er lýsingin nú kynnt almenningi og umsagnaraðilum. Er hún hér með sent nefndum bæjarins til kynningar. Frestur til að skila inn umsögnum eða ábendingum vegna lýsingarinnar er til 17.febrúar 2015. Senda skal umsagnir eða ábendingar til skipulagsstjóra Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.$line$Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is og í þjónustuveri Garðabæjar að Garðatorgi 7.$line$Almennur kynningarfundur verður haldinn í Flataskóla miðvikudaginn 14.janúar og hefst hann klukkan 17.30. Þar verður lýsingin og innihald hennar kynnt almenningi.
Vinnuferlið við skipulagið kynnt safnstjóra.