Beint í efni

Geymilegir hlutir - Sýningar safnsins

Málsnúmer 1505134

Ferill máls

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01

1. fundur

Starfsemi - næstu verkefni

Forstöðumaður sagði frá undirbúningi að næstu sýningu safnsins sem skal standa sem upplag að fastri sýningu í nokkurn tíma. Aftari hluti sýningarrýmisins verður nýttur í sumar til að skrá stór söfn sem safnið hefur eignast. Þannig gefst gestum tækifæri til að sjá vinnurými og sumarstarfsfólk og annað starfsfólk getur sagt frá vinnu við safnskráningu þegar gestir skoða safnið. Sýningin er einnig sett upp til hliðsjónar af vinnu sem hefst í haust á fyrirhugaðri bókaútgáfu á hápunktum úr safneign safnsins. Forstöðumaður sagði einnig frá frekara samstarfi við Gljúfrastein og Heimilisiðnaðarsafninu á farandsýningu á lopapeysunni. Barnahorn verður sett upp í sumar í tengslum við safnmunasýninguna.