Beint í efni

3. fundur

09.12.2015
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

3. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

í Hönnunarsafni við Garðatorg

09.12.2015

Kl. 12:00 - 13:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður

Ritari

  • Erling Ásgeirsson

Dagskrá

Málsnúmer 1505136

01

Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019

Breytingatillögur til lokafrágangs afgreiddar

Stjórn fór yfir síðustu drög að Stefnumótun stjórnar næstu 4 árin. Breytingar samþykktar og ákveðið að ganga frá svo senda megi fyrir bæjarráð Garðabæjar.

Málsnúmer 1512009

02

Heimilda- og gagnasöfnun hugverkaiðnaðar (leikjaiðnaður)

Formaður stjórnar skýrði frá fundi sem hann og forstöðumaður safnsins áttu með Elínrós Líndal, viðskiptastjóra Samtaka leikjaframleiðenda á Íslandi hjá Samtökum Iðnaðarins um mögulegt samstarf við uppbyggingu á safneign og heimildaleit.

Málsnúmer 1512029

03

Önnur mál (stj.fundur 9.12.2015)

Önnur mál sem upp verða borin

Starfsáætlun

Forstöðumaður lagði fram starfsáætlun næsta árs, sýningaráætlun ársins og önnur verkefni sem í gangi eru í safninu og með samstarfsaðilum og öðrum stofnunum eða félagasamtökum.

Rekstur

Forstöðumaður skýrði frá rekstrarstöðu safnsins við árslok, greindi frá styrkjum og sjálfsaflafé á árinu og stuttlega var rætt um þær tekjur sem felast í aðgangseyri.

Tilvonandi rekstraraðilar á Garðatorgi

Forstöðumaður skýrði frá fundi sem haldinn var með núverandi og tilvonandi rekstraraðilum við Garðatorg, m.a. í veitinga- og kaffihúsarekstri. Skoðaðir verði möguleikar á samstarfi.

Samstarf við Sorpu

Formaður stjórnar skýrði frá samtali hans við framkvæmdastjóra Sorpu um flöt á samstarfi Góða hirðisins við Hönnunarsafnið vegna varðveislu merkisbærrar hönnunar. Forstöðumanni safnsins falið að hafa samband við verslunarstjóra Góða hirðisins í framhaldinu.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum sem lauk kl. 14:30

Harpa Þórsdóttir ritaði fundargerð í forföllum Margrétar Bjarkar Svavarsdóttur.