Beint í efni

Önnur mál (stj.fundur 9.12.2015)

Málsnúmer 1512029

Ferill máls

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01

3. fundur

Önnur mál sem upp verða borin

Starfsáætlun
Forstöðumaður lagði fram starfsáætlun næsta árs, sýningaráætlun ársins og önnur verkefni sem í gangi eru í safninu og með samstarfsaðilum og öðrum stofnunum eða félagasamtökum.

Rekstur
Forstöðumaður skýrði frá rekstrarstöðu safnsins við árslok, greindi frá styrkjum og sjálfsaflafé á árinu og stuttlega var rætt um þær tekjur sem felast í aðgangseyri.

Tilvonandi rekstraraðilar á Garðatorgi
Forstöðumaður skýrði frá fundi sem haldinn var með núverandi og tilvonandi rekstraraðilum við Garðatorg, m.a. í veitinga- og kaffihúsarekstri. Skoðaðir verði möguleikar á samstarfi.

Samstarf við Sorpu
Formaður stjórnar skýrði frá samtali hans við framkvæmdastjóra Sorpu um flöt á samstarfi Góða hirðisins við Hönnunarsafnið vegna varðveislu merkisbærrar hönnunar. Forstöðumanni safnsins falið að hafa samband við verslunarstjóra Góða hirðisins í framhaldinu.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum sem lauk kl. 14:30
Harpa Þórsdóttir ritaði fundargerð í forföllum Margrétar Bjarkar Svavarsdóttur.