Fundargerð bæjarráðs frá 15/3 ´16.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (789). fundur
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., stöðu mála varðandi samninga við ríkið um yfirtöku á starfsemi Ísafoldar og 16. tl., minnisblað VSÓ um ástand og framtíð gervigrasvalla í Garðabæ. Steinþór óskaði eftir nánari upplýsingum um stöðu mála á viðræðum við Stjörnuna um uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélagsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfis.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélagsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfis, 12. tl., stöðu mála varðandi samninga við ríkið um yfirtöku á starfsemi Ísafoldar og 16. tl., minnisblað VSÓ um ástand og framtíð gervigrasvalla í Garðabæ. Bæjarstjóri sagði nánar frá hugmyndum um uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarðs og viðræðum við forsvarsmenn Stjörnunnar um málið.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju og ræddi uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls ræddi uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
María Grétarsdóttir, ræddi uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, ræddi uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Fundargerðin sem er 16. tl. er samþykkt samhljóða.