Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um frávik frá deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 37 og 39.

Málsnúmer 1606458

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

26. (1743). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfa byggingarleyfis samkvæmt. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna frágangs þaks en um óverulegt frávik er að ræða fá deiliskipulagi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að vikið sé frá ákvæðum varðandi frágang þaks á inndregnum efstu hæðum. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar vegna málsins.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að vikið sé frá ákvæði 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi við veitingu byggingarleyfis þar sem að óverulegt frávik sé að ræða þar sem að hagsmunir nágranna skerðast ekki sbr. 3.mgr. sömu greinar.