Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Kauptúns.

Málsnúmer 1511336

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

32. (1749). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í grenndarkynningu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Kauptúns að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Breyting skoðast því samþykkt sbr. 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

03

26. (1743). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Kauptúns er varðar lóðina nr. 4 Kauptún en tillagan gerir ráð fyrir að ákvæði um hraunhól falli niður en í þess stað verði gert ráð fyrir bílastæðum til hleðslu rafbíla.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir því að ákvæði um hraunhól við suðaustur horn byggingar Kauptúns 4 verði fellt úr gildi og í þess stað gert ráð fyrir bílastæðum fyrir rafbíla með hleðslustöðvum. Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal aðliggjandi lóð og rekstrarfélagi Kauptúns.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

17. fundur

Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags Kauptún sem gerir ráð fyrir því að ekki verði gerð krafa um hraunhól framan við byggingu. Skipulagsnefnd heimilar forkynningu tillögunnar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga með því skilyrði að þess sé gætt við útfærslu á bílastæðunum að þau séu eingöngu fyrir rafmagnsbíla og að hraungrýti verði nýtt til þess að móta og afmarka þennan hluta lóðar. T.d. með hlöðnum veggjum eða myndarlegri vörðu.
Skipulagsnefnd heimilar forkynningu tillögu fyrir Kauptún 4. í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga. Tillagan skal vera hluti af heildarbreytingartillögu deiliskipulags Kauptúns ásamt með breytingum á lóð nr. 1 nr. 2 og nr. 3 og sem og lóð fyrir OR.