Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Hagaflöt 18.

Málsnúmer 1606244

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

32. (1749). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Hagaflöt 18 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í grenndarkynningu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Breyting skoðast því samþykkt sbr. 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

03

26. (1743). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata er varðar lóðina nr. 18 við Hagaflöt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram fyrirspurn um hvort tillaga um stækkun húss sé í samræmi við deiliskipulag.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að rými sem áður hefur verið opið að götu verði lokað og nýtt fyrir bílageymslu. Þar sem að ákvæði í skilmálum um lengd bílageymslu að lóðarmörkum er 7,5 m telur skipulagsnefnd að grenndarkynna skuli tillöguna. Skipulagsnefnd heimilar grenndarkynningu tillögunnar. Grenndarkynna skal eigendum Hagaflatar 16 og 20 og Lindarflatar 36.