1. fundur
1. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í endanum 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
03.04.2017
Kl. 13:00 - 14:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1703064
01
Frávik vegna frágangs á yfirborði bílastæða við Bæjargötu 1-9
Lagt fram erindi íbúa við Bæjargötu 1-9 móttekið 3.mars. Þar er útskýrt af hverju bílastæði hafa verið malbikuð en ekki hellulögð með gegndræpu efni.
Skipulagsstjóri samþykkir með vísan í 3.mgr. 43.gr. Skipulagslaga og 2.gr.e. í viðauka II samþykktar nr.20 að heimila að við veitingu byggingarleyfis sé vikið sé frá kröfu 2.mgr.43.gr. Skipulagslaga þar sem um óverulegt frávik sé frá síðustu mgr. greinar 4.6.1.1. í skipulagsgreinargerð Urriðaholts vesturhluta sé að ræða.
Málsnúmer 1605301
02
Stekkjarflöt 22,dsk breyting
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að breytingum á íbúðarhúsinu að Stekkjarflöt 22. Bygging fer 50-100 cm út fyrir byggingareit.
Skipulagsstjóri samþykkir með vísan í 3.mgr. 43.gr. Skipulagslaga og 2.gr.e. í viðauka II samþykktar nr.20 að heimila að við veitingu byggingarleyfis sé vikið sé frá kröfu 2.mgr.43.gr. Skipulagslaga þar sem um óverulegt frávik sé frá deiliskipulagi Flata er að ræða. Samþykki nágranna að Stekkjarflöt 20 fyrir útfærslunni liggur fyrir og það lagt fram.
Málsnúmer 1606329
03
Garðahraun. Breytingar á deiliskipulagi.
Lögð fram ósk lóðarhafa um að byggingarreitur lóðarinnar Garðprýði 5 sé færður til um 8 metra til austurs.
Skipulagsstjóri samþykkir með vísan í 2.mgr. 43.gr. Skipululagslaga og 2.ml 3.mgr.44.gr. að um óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns sé að ræða og að grenndarkynning sé felld niður. Endurskoðað deiliskipulag Garðahrauns liggur fyrir með þessari breytingu en þar sem að umsækjandi hefur hafið undirbúning framkvæmda er þessi leið farin að þeirra ósk.