Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi Kópavogs um breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024.
Málsnúmer 1607222
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
32. (1749). fundur
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar þar sem fram kemur að nefndin telji ekki ástæðu til að gera athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi Kópavogs vegna fjölgunar á íbúðum í Smáranum vestan Reykjanesbrautar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
11. fundur
Lagt fram erindi frá skipulasgstjóra Kópavogs þar sem athygli er vakin á breytingu á aðalskipulagi Kópavogs sem gerir ráð fyrir því að íbúðum í Smáranum vestan Reykjanesbrautar fjölgi úr 500 í 620. Fram kemur í minnisblaði VSÓ að breytingin hafi óveruleg áhrif á umferð í kringum skulagssvæðið.
Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemd við tillöguna.