Málefni Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Málsnúmer 1608551
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (1753). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri. Gerðu þeir grein fyrir rekstrarafkomu samkvæmt árshlutauppgjöri, fóru yfir þróun á umfangi starfseminnar undanfarin ár, fjölluðu um þróun einstakra kostnaðarþátta og í því sambandi var vikið sérstaklega að þróun launakostnaðar og áhrifum starfsmats.
Fjallað var um vinnu við gerð brunavarnaráætlunar sem kynnt hefur verið í stjórn SHS en þegar áætlunin liggur fyrir mun hún verða send sveitarstjórnum til meðferðar og afgreiðslu.