Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð og lagna 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Málsnúmer 1609213

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

47 (1764). fundur

Lögð fram eftirfarandi tilboð.

Ístak hf kr. 499.749.125

Loftorka Reykjavík ehf./Suðurverk hf. kr. 445.505.440

Hálsafell ehf. kr. 314.185.440

Gott verk ehf. kr. 334.466.510

Grafa og grjót ehf. kr. 382.964.750

GT hreinsun ehf. kr. 339.843.270

Kostnaðaráætlun kr. 351.188.728

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda, Hálsafells ehf., með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Gunnar Valur Gíslason, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

36. (1753). fundur

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðinni Urriðaholtsstræti 10-12 og á deiliskipulagssvæði 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og vísar í því sambandi til ákvæðis 3. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 þar sem fram kemur heimild til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði án þess að byggingarleyfi hafi verið gefið út.

Fylgiskjöl