Beint í efni

47 (1764). fundur

06.12.2016
Bæjarráð Garðabæjar

47 (1764). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

06.12.2016

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - varamaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1611301

01

Sundlaugin við Ásgarð, endurbætur - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við endurbætur á sundlauginni við Ásgarð samkvæmt uppdráttum Ólafs Axelssonar, arkitekts.

Umsagnir liggja fyrir frá umsagnaraðilum og er verið að vinna að lagfæringum á uppdráttum vegna ábendinga frá heilbrigðiseftirliti.

Afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi frestað.

Málsnúmer 1409117

02

Holtsvegur 47 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Seles ehf., kt. 591112-1470, endurnýjað byggingarleyfi vegna fjölgunar íbúða úr 9 í 10 í fjölbýlishúsinu við Holtsveg 47.

Málsnúmer 1409116

03

Holtsvegur 45 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Seles ehf., kt. 591112-1470, endurnýjað byggingarleyfi vegna fjölgunar íbúða úr 9 í 10 í fjölbýlishúsinu við Holtsveg 45.

Málsnúmer 1612001

04

Erindi Veraldavina varðandi verkefni fyrir sjálfboðaliða árið 2017, dags. 30.11.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umverfissviðs og mannauðsstjóra.

Málsnúmer 1611294

05

Bréf Lauga ehf. varðandi lóð við Sundlaugina við Ásgarð undir heilsuræktaraðstöðu, dags 29.11.16.

Bæjarráð vísar málinu á þessu stigi til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611274

06

Reglur um hvatapeninga 2017

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um reglur um hvatapeninga árið 2017 þar sem gert er ráð fyrir að fjárhæð hvatapeninga hækki úr kr. 30.000 í 32.000 í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um að tónlistarnám falli undir skipulagt tómstundastarf samkvæmt reglunum.

Málsnúmer 1611269

07

Bréf Yrkjusjóðs um styrk árið 2017, dags. 22.11.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611275

08

Ályktun Skólastjórafélags Reykjaness um kjaramál, dags. 25.11.16.

Lögð fram ályktun Skólastjórafélags Reykjaness varðandi kjaramál kennara.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1609213

09

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð og lagna 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Lögð fram eftirfarandi tilboð.

Ístak hf kr. 499.749.125

Loftorka Reykjavík ehf./Suðurverk hf. kr. 445.505.440

Hálsafell ehf. kr. 314.185.440

Gott verk ehf. kr. 334.466.510

Grafa og grjót ehf. kr. 382.964.750

GT hreinsun ehf. kr. 339.843.270

Kostnaðaráætlun kr. 351.188.728

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda, Hálsafells ehf., með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Gunnar Valur Gíslason, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611313

10

Bréf Samgöngustofu varðandi umsókn um staðsetningu ökutækjaleigu, dags. 28.11.16.Beiðni um umsögn um staðsetningu ökutækjaleigu, Skeiðarás 10

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Guðlaugi Sigurðssyni, kt. 100163-3819 f.h. Bílaleigu Íslands, ehf., kt. 570596-2259, verði veitt leyfi til að starfrækja ökutækjaleigu að Skeiðarási 10.

Málsnúmer 1606484

11

Samningur Garðabæjar og Minjastofnunar um styrkveitingu úr húsafriðunarsjóði

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611278

12

Bréf Mannvirkjastofnunar varðandi kvörtun um stjórnsýslu, dags. 28.11.16.

Bæjarverkfræðingur gerði nánari grein fyrir málinu.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að bréfinu verði svarað.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1608440

13

Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga um framtíðarskipan húsnæðismála, dags. 01.12.16.

Lagt fram bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi samþykkt stjórnar um að hvetja sveitarfélög til að hraða vinnu við gerð húsnæðisáætlana á grundvelli laga um almennar íbúðir.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1612020

14

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs á styrkjum 2016

Íris Arna Tómasdóttir kr. 20.000, vegna EM kvenna í hópfimleikum.

Davíð Bjarni Björnsson kr. 20.000, vegna HM U19 í badminton.

Freydís Halla Einarsdóttir kr. 20.000, vegna ferðar með skíðalandsliðinu.

Freydís Halla Einarsdóttir kr. 20.000, vegna ferðar með skíðalandsliðinu.

Ásgeir Guðbjartsson kr. 20.000, vegna HM í snóker 17. nóvember 2016 í Qatar.

Tanja Ólafsdóttir kr. 20.000, vegna keppni með blönduðu liði Íslands í hópfimleikum EM.

Tinna Ólafsdóttir kr. 20.000, kt. 1002992599 v/ keppnisferðar með kvennaliði Íslands í hópfimleikum á EM.