Beint í efni

Reglur um hvatapeninga 2017

Málsnúmer 1611274

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

19. (802). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um reglur um hvatapeninga árið 2017 þar sem gert er ráð fyrir að fjárhæð hvatapeninga hækki úr kr. 30.000 í kr. 32.000 í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um að tónlistarnám falli undir skipulagt tómstundastarf samkvæmt reglunum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

47 (1764). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um reglur um hvatapeninga árið 2017 þar sem gert er ráð fyrir að fjárhæð hvatapeninga hækki úr kr. 30.000 í 32.000 í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um að tónlistarnám falli undir skipulagt tómstundastarf samkvæmt reglunum.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

24. fundur

Uppfærðar reglur um hvatapeningagreiðslur til einstaklinga 5 ára til 18 ára fyirr árið 2017.

Samþykkt var að leggja til hækkun hvatapeninga fyrir árið 2017 úr 30.000,- kr. í 32.000,- kr. fyrir hvert barn 5 ára til 18 ára eins og verið hefur. Hvatapeninga geti hvert barn nýtt í allt skipulagt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf, þar með talið tónlistarnám, eins og nánar er kveðið á um í reglugerðinni um hvatapeninga Garðabæjar.